Jarðhitasýningin verður lokuð á páskadag og annan í páskum (5. og 6. apríl).

ÍS

EN

ÍS

EN

ÍS

EN

May 27, 2026

Af hverju eru lagnirnar í beygjum?

Beygjurnar í lögnunum gegna mikilvægu hlutverki í vinnslu virkjunarinnar.

Ein algengasta spurning sem við fáum hér á Jarðhitasýningunni frá gestunum okkar er af hverju eru beygjur á lögnunum. Beygjurnar (og þenslulykkjur) eru mikilvægur partur fyrir öll veitukerfi.


Jarðvarmavirkjanir nýta heitan jarðhitavökva og gufu fyrir virkjanasarfsemi sína, sem koma úr djúpum vinnsluholum. Úr vinnsluholunum ferðast jarðhitavökvinn og gufan að virkjuninni sjálfri í gegnum málmlagnir. Þegar heitur jarðhitavökvinn og gufan renna um lagnirnar, þá þenjast lagnirnar út. Þetta ferli er kallað varmaþensla.



Varmaþensla er eðlislægur eiginleiki efnis sem breytir lögun efnisins eftir hitabreytingum. Hversu mikið efni þenst út fer eftir nokkrum þáttum s.s. efnafræðilegum eiginleikum efnisins, lengd lagnarinnar sem er lögð og hversu heitur vökvinn er, sem fer í gegnum lögnina. Áhrif varmaþenslu á stuttar vegalengdir er minni, en yfir tíma, verða þessar breytingar stærri. Þess vegna er mikilvægt að vera með þenslulykkjur og beygjur í lögnunum.



Í Hellisheiðarvirkjun eru þessar beygjur og lykkjur hannaðar sérstaklega fyrir hitann í jarðhitavökvanum sem kemur upp úr vinnsluholunum á svæðinu. Þessar beygjur og lykkjur veita lögnunum þann sveignaleika sem þær þurfa fyrir varmaþensluna.


Ef ekki væri fyrir þessar beygjur og lykkjur væru lagnirnar undir miklu álagi og er hætta á að á þeim myndast sprungur og gætu því rifnað í sundur. Beygjurnar eru því nýttar til þess að flytja jarðhitavökva og gufu á öruggan máta að virkjuninni sjálfri. Þú getur séð lagnirnar í gegnum gluggana eða á svölunum á Jarðhitasýningunni.