ÍS

EN

ÍS

EN

ÍS

EN

Hópaleiðsögn

Carbfix leiðsögn

Kynntu þér byltingarkennt íslenskt hugvit, Carbfix, þar sem CO₂ er bundið í bergi.

blob_qulykl.webp
blob_qulykl.webp
blob_qulykl.webp

Um leiðsögnina

Carbfix leiðsögnin okkar býður upp á ítarlegri upplifun sem hefst á leiðsögn um Jarðhitasýninguna og endar á því að gestir fara út að einni af niðurdælingarholum Carbfix (ef veður og aðstæður leyfa).


Leiðsögnin tekur 1–1,5 klukkustund og er leidd af vísindamiðlara. Fjallað er meðal annars um:


Kynning á jarðfræði Íslands og jarðhitaumhverfinu sem landið býr yfir.


Útskýring á nýtingu jarðvarma til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni, ásamt dreifingu orkunnar.


Ítarleg umfjöllun um Carbfix-aðferðina, sem gerir varanlega kolefnisbindingu mögulega og veitir meira svigrúm til umræðu en almenn leiðsögn.


Kynning á starfsemi Jarðhitagarðs ON, sem er grænn iðngarður þar sem framsækin fyrirtæki starfa með áherslu á hringrásarhugsun.


Leiðsögnin er sérsniðin að þörfum hvers hóps. Við hvetjum forsvarsaðila til að senda okkur upplýsingar um áherslur svo heimsóknin verði sem markvissust.


Gestir eru hvattir til að spyrja spurninga og gefst jafnframt tækifæri til að skoða sýninguna að lokinni leiðsögn.



Áður en þú bókar

Tímalengd

:

1–1,5 klukkustundir

Öryggisbúnaður

:

Allir gestir verða að horfa á öryggismyndband og bera hjálm, sýnileikavesti og öryggisgleraugu sem veitt eru á staðnum.

Aldursmörk

:

16 ára og eldri

Klæðnaður

:

Klæðnaður skal vera eftir veðri. Opnir skór eða háhælaðir skór eru ekki leyfðir.

Aðgengi

:

Aðgangur að borholum og niðurdælingarsvæði er háð veðri og aðstæðum á vinnusvæði

Hafðu samband til að bóka

Vinsamlegast hafið samband vegna lausra tíma og verðs.