Hvenær gaus síðast á Hengilsvæðinu?
Lærðu meira um eldvirkni í nærumhverfi Hellisheiðarvirkjunar🌋

Hellisheiðarvirkjun er staðsett á Hengilssvæðinu, sem er eldstöðvarkerfi innan eldgosabelti Reykjaness. Tilvera þessa eldstöðvakerfis gerir Orku Náttúrunnar kleift að nýta jarðhitann til framleiðslu rafmagns og heits vatns. Hengilskerfið hefur gosið þónokkrum sinnum í aldanna rás og gestir sýningarinnar velta því oft fyrir sér hvenær það gaus síðast- og hvenær það gerist næst.
Sumir jarðfræðingar telja eldstöðvakerfi Hrómundartinda og Grændals sem hluta af Hengilskerfinu eða forvera þess. Þessi kerfi hafa saman verið virk í að minnsta kosti 900.000 ár en Hengilskerfið hefur gosið 9 sinnum síðustu 10.000 árin.
Síðustu tvö eldgos innan Hengilskerfisins áttu sér stað fyrir 5800 og 1900 árum síðan (~3750 f. Kr. og 150±75 e. Kr.). Í fyrra gosinu opnaðist 20 km löng gossprunga og það seinna átti sér stað á 27 km gossprungu. Hraunflæðin úr þessum gosum þekja 30 km2 og heita Hagarvíkurhraun og Nesjahraun. Í síðasta gosinu átti sér stað svokölluð vatns- og kvikuvirkni (e. *phreatomagmatic activity*) í Þingvallavatni. Þetta gerist þegar kvika og vatn komast í snertingu, sem veldur sprengigosum. Þessi virkni myndaði tvo samtengda gjóskuhringi á eyjunni Sandey.
Nýjasta virknin á Hengilssvæðinu varð árið 1789. Um var að ræða innskot kviku en engin yfirborðsvirkni eða gos komu fram. Hiti frá þessu innskoti stuðlar að heildarorkubúskap jarðhitans á svæðinu. Þegar hugað er að mögulegu næsta gosi í Hengilskerfinu er ómögulegt að segja til um hvenær það muni eiga sér stað. Það gæti gerst á næstu 100 árum eða næstu 5.000 árunum. Sem betur fer er svæðið undir öflugu eftirliti. Starfsemi á virkum eldfjallasvæðum, sem og háhitasvæðum, er nauðsynleg til að virkja nægilega mikla orku til raforkuframleiðslu; þess vegna er mikilvægt að skilja þessi kerfi og fylgjast vel með þeim.