Mar 31, 2026
Nesjavallavirkjun
Vissir þú að Orka náttúrunnar rekur tvær jarðvarmavirkjanir?

Orka náttúrunnar rekur ekki einungis Hellisheiðarvirkjun heldur einnig Nesjavallavirkjun.
Nesjavallarvirkjun hefur uppsett afl upp á 120 MWe and 350 MWth, en virkjunin sendir um 1640 lítra á sekúndu af heitu vatni til höfuðborgarsvæðisins.
Nesjavallavirkjun er staðsett á Hengilssvæðinu og nýtir því sama eldstöðvarkerfi og Hellisheiðarvirkjun. Hún er staðsett hinu megin við fjallgariðinn, nær Þingvallarvatni.

Á fimmta ártug síðustu aldar voru gerðar rannsóknir á jarðhita svæðinu. Talið var að þar væru miklir möguleikar á nýtingu jarðvarma en borunartækni var ekki nægilega þróuð hér á landi á þeim tíma. Árið 1965 keypti Reykjavíkurborg svæðið þar sem Nesjavallarvirkjun er stendur í dag með nýtingu jarðvarma í huga. Bygging virkjunarinnar hófst árið 1987 og starfsemi hennar hófst árið 1990.
Í dag er Nesjavallarvirkjun stærsti framleiðandi heits vatns fyrir höfuðborgarsvæðið, ásamt Hellisheiðarvirkjun og lághitasvæðum innan borgarinnar.
Virkjunin er ekki opin almenningi en Orka náttúrunnar sér um gönguleiðir í nágrenni hennar þar sem hægt er að njóta einstaks útsýnis yfir svæðið. Virkjunin stendur í dal þar sem einnig er að finna ION hótelið og Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum.

Auk þessara tveggja jarðvarmavirkjana rekur Orka náttúrunnar einnig litla vatnsaflsvirkjun, Andakílsárvirkjun. Hún hefur verið í rekstri frá árinu 1947 og hefur uppsett afl upp á 8 Mwe. Þú getur kynnt þér virkjanasvæði Orku náttúrunnar hér.