Hellisheiði verður lokuð í austur 8. september, frá kl. 10-16.

ÍS

EN

The road Hellisheiði will be closed to eastbound traffic from 14:00-18:00 on September 8th. Westbound traffic is not affected.

ÍS

EN

The road Hellisheiði will be closed to eastbound traffic from 14:00-18:00 on September 8th. Westbound traffic is not affected.

ÍS

EN

6 Október 2026

Myndun nornahára

Hvað eru nornahár og hvernig myndast þau?


Margir hafa heyrt um nornahár, sérstaklega eftir gosin á Reykjanesskaga 2024 og 2025, en þá bárust fregnir af nornahárum í Reykjanesbæ. Hvað eru þessi nornahár og hvernig myndast þau? 



Nornahár eru tegund af gjósku, en gjóska er skilgreind sem fast efni sem flyst frá gosupptökunum í gegnum andrúmsloftið. Þessi tiltekna tegund gjósku myndast þegar basískt hraun myndar glerþræði. Glerþræðirnir myndast þegar að kvikudropar sem þeytast útí andrúmsloftið ná að teygjast og síðan storkna. Þessi gjóskukorn má aðallega finna í svokölluðum Havaiískum gosum. Þessi havaiísku gos eru flæðigos sem einkennast af því að hafa stöðugt en rólegt flæði af basísku hrauni, líkt því sem var í Fagradalsfjalli 2021. 



Nornahár hafa myndast í nokkrum gosum hér á landi, m.a í Holuhrauni 2014-2015 og núna nýlega í goshrinunni á Reykjanesskaganum eins og fyrr var nefnt. Nornahár myndast líka frekar reglulega í gosum á Hawaii þar sem Havaiísk gos draga nafn sitt. 



Nornahár eru mjög fín enda eru þau bara gler og eru þess vegna mjög viðkvæm. Þau geta orðið talsvert löng og líkjast þau mannshárum í útliti. Þau eru létt og berast auðveldlega langt frá gosupptökunum með vindinum. Þegar mörg nornahár safnast saman geta þau litið út eins og hárvöndlar, en þaðan kemur nafn fyrirbærisins. Ekki er ráðlagt að komið sé við nornahár af fyrra bragði þar sem þetta eru í rauninni bara glerbrot sem eru mjög beitt og auðvelt er að skera sig á þeim. 



Á Jarðhitasýningunni má að sjá nornahár frá eldgosinu sem átti sér stað í júlí 2025 á Reykjanesi.