Jan 22, 2026
Vatnsveggurinn – vatnið segir sína sögu
Hvernig mætir vatn þér í daglegu lífi?

Vatn er nauðsynlegur hluti af lífi okkar allra, allt frá eigin notkun til umhverfisins í kringum okkur. Á Íslandi mótar vatn líf okkar á marga vegu, jöklar, ár, regn, jarðhiti og hafið fléttast saman í einstakt vatnskerfi sem hefur mótað samfélagið í aldanna rás.

Gnægð vatns hefur gert okkur kleift að byggja upp eitt sjálfbærasta orkukerfi heims, þar sem um 70% raforku landsins kemur frá vatnsafli og 30% frá jarðvarma – orkuframleiðsla sem báðar reiða sig á vatn. Þá eru um 90% allra bygginga á Íslandi hituð með heitu vatni sem streymir um ofna og gólf og gerir okkur kleift að lifa þægilegu lífi í köldu loftslagi.
Auk orkuframleiðslu gegnir vatn mikilvægu hlutverki í menningu landsins og gerir okkur kleift að njóta útisundlauga allt árið um kring þökk sé upphituðum sundlaugum og heitum pottum. Fiskveiðar hafa verið mikilvægur hluti af lífinu á Íslandi í aldir í ám, vötnum og út á hafi þar sem vatnið leikur lykil hlutverki, einnig notum vatn til snjóbræðslu og landbúnaðar. Hafið, árnar og heitu lindirnar tengja því okkur við náttúruna á margvíslegan hátt.

Einmitt vegna þess að vatn er svo sjálfsagt í daglegu lífi er auðvelt að gleyma því hversu margþætt hlutverk þess er – og hversu háð við erum því. LIFE IceWater verkefnið var sett á laggirnar til að varpa ljósi á þessi tengsl, auka þekkingu á notkun og ástandi vatns á Íslandi og stuðla að betri vatnsstjórnun til framtíðar.
LIFE Icewater verkefnið fékk fjármögnun frá ESB árið 2025 en markmiðið með verkefninu er bæði að bæta gæði og stjórnun vatnsauðlinda og efla fræðslu og vitund almennings um mikilvægi vatns. Verkefnið hefur 5 ára fjármögnun og er samstarfsverkefni 21 fyrirtækis og sveitarfélaga, þar á meðal Orkuveitu Reykjavíkur, Orku náttúrunnar og Veitna.

Á Jarðhitasýningunni tölum við um vatn við gesti okkar á hverjum degi. Vatnsveggurinn okkar var settur upp til að styðja við fræðslu um vatnið, skapa sýnileg tengsl til að efla vitund almennings um hvernig við notum vatnið í dagurlega lífi og hvernig við erum háð vatninu sem umlykur okkur. Sjónræn leið til að skapa tengsl og kveikja spurningar: Hvaðan kemur vatnið sem við notum?
Myndirnar á veggnum sýna vatn í ólíkum myndum, formum og aðstæðum, allt frá hversdagselgum augnablikum til þeirra innviða sem oft eru falin sjónum, eins og pípulögnum, skólpi og orkuframleiðslu. Þær minna okkur á að vatn er stöðugt á hreyfingu og fléttast inn í líf okkar á fleiri vegu en við gerum okkur oft grein fyrir.

Vatnsveggurinn er notaður samhliða öðrum sýningum innan Jarðhitasýnarinnar eins og hringrás vatnsins og jarðvarmaframleiðslu Orku náttúrunnar í Hellisheiðarvirkjun og býður gestum á öllum aldri að staldra við, skoða, velta fyrir sér – og sjá vatnið í nýju ljósi.
Þú getur lesið meira um verkefnið á vefsíðu þeirra