Hópaleiðsögn
Kraftur + Carbfix
Í Krafti með Carbfix leiðsögn fá gestir heildstæða innsýn í starfsemi Orku náttúrunnar og Carbfix.

Um leiðsögnina
Þessi ítarlega heimsókn sameinar upplifunina í Krafti og leiðsögn um Carbfix. Gestir fá einstaka innsýn í íslenska jarðvarmavinnslu, nýsköpun í kolefnisbindingu og starfsemi Orku náttúrunnar, Carbfix, Jarðhitagarðsins og Orkuveitu Reykjavíkur.
Þessi ítarlega heimsókn sameinar upplifunina í Krafti og leiðsögn um Carbfix. Gestir fá einstaka innsýn í íslenska jarðvarmavinnslu, nýsköpun í kolefnisbindingu og starfsemi Orku náttúrunnar, Carbfix, Jarðhitagarðsins og Orkuveitu Reykjavíkur.
Heimsóknin er sérstaklega ætluð fagfólki, háskólasamfélaginu og öðrum sem vilja öðlast dýpri skilning á íslenskri jarðvarmavinnslu, rekstri og nýsköpun á sviði orku- og loftslagslausna.
Heimsóknin tekur um 1,5–2 klukkustundir og meðal umfjöllunarefna eru:
Orkuframleiðsla og dreifing við Hellisheiðarvirkjun
Rekstur Orku náttúrunnar og Orkuveitu Reykjavíkur
Leiðsögn um Carbfix niðurdælingarholu og nærliggjandi svæði
Ítarleg útskýring á kolefnisbindingarferli Carbfix – frá föngun koltvísýrings til varanlegrar bindingar í basalti.
Kynning á Jarðhitagarði Orku náttúrunnar.
Rannsóknar- og þróunarverkefni í gangi
Lögð er áhersla á opið samtal við vísindamiðlara okkar þar sem gestum gefst kostur á að spyrja spurninga og ræða efnið. Fyrri hluti heimsóknarinnar fer fram í fundarrými en síðari hlutinn felur í sér vettvangsheimsókn að niðurdælingarsvæði Carbfix, að því gefnu að veður og aðstæður leyfi.
Hægt er að bæta við veitingum gegn aukagjaldi, svo sem íslensku kaffi og kleinum.
Áður en þú bókar
Tímalengd
1,5-2 klukkustundir
Öryggisbúnaður
Allir gestir verða að horfa á öryggismyndband og bera hjálm, sýnileikavesti og öryggisgleraugu sem veitt eru á staðnum.
Aldursmörk
16 ára og eldri
Klæðnaður
Klæðnaður skal vera eftir veðri. Opnir skór eða háhælaðir skór eru ekki leyfðir.
Aðgengi
Aðgangur að borholum og niðurdælingarsvæði er háð veðri og aðstæðum á vinnusvæði