Jarðhitasýningin
Slakaðu á, fræðstu og upplifðu kraft náttúrunnar – með heitum kaffibolla og útsýni yfir stórbrotið umhverfi.
Meira en sýning
Auk Jarðhitasýningarinnar sjálfrar geta gestir notið kaffihússins, verslað í gjafavöruversluninni, fyllt á vatnsbrúsa, hlaðið rafbílinn og kannað gönguleiðir í nágrenninu. Einnig er hægt að spjalla við fróða vísindamiðlara okkar sem deila þekkingu sinni á jarðvarma og náttúru Íslands.
Hvort sem þú kemur í leiðsögn, kaffisopa eða til að seðja forvitni þína um jarðhitamenningu Íslands, finnur þú hér allt sem þarf til að gera heimsóknina ánægjulega og eftirminnilega.
Forvitnishornið okkar
Kannaðu Forvitnishornið okkar
Forvitnishornið býður gestum að fræðast á lifandi og skemmtilegan hátt um jarðfræði, orkuvinnslu og vatn. Komdu og virkjaðu forvitnina.
Kaffi Orka
Kaffihornið okkar
Kaffi Orka er kaffihús Jarðhitasýningarinnar þar sem gestir geta notið heitra drykkja og ljúffengra sætra bita í afslöppuðu umhverfi.
Kaffihúsið er kjörinn staður til að slaka á – fletta bók úr litla bókasafninu okkar, spjalla við fróðlega vísindamiðlara eða einfaldlega njóta útsýnisins.
Í boði er meðal annars:
Kaffi, te og heitt kakó
Gosdrykkir, freyðivín (áfengt og óáfengt) og jarðhitabruggaður bjór
Íslenskt sælgæti og sætir bitar
Gjafavöruverslun
Vörur úr nágrenninu
Gjafavöruverslunin okkar býður upp á vandað úrval íslenskra vara.
Hér finnur þú einstaka minjagripi sem fagna íslenskri náttúru og handverki, þar á meðal ilm innblásinn af Henglinum, fræðandi bækur, handgert keramik, te, salt og margt fleira.
Mundu...
Þegar þú ert að heimsækja okkur, vertu viss um að:
Fylltu á vatnsflöskuna þína
Athugaðu færð og veður á SafeTravel skjánum
Fáðu upplýsingar um fjölbreyttar gönguleiðir á Henglinum.
Stingdu rafmagnsbílnum þínum í hleðslu á meðan þú skoðar sýninguna.
Við leggjum okkur fram að gera heimsókn þína ánægjulega.
Bókaðu heimsókn
Hvort sem þú kemur til að skoða, njóta eða fræðast, er Hengillinn svæði sem býr yfir mikillri orku og sögu.





