ÍS

EN

ÍS

EN

ÍS

EN

Feb 26, 2026

Framleiðsla á heitu vatni

Vissir þú að Orka náttúrunnar sér um um 50% af heita vatninu á höfuðborgarsvæðinu?

Í Hellisheiðarvirkjun sér Orka náttútunnar um framleiðslu á heitu vatni fyrir höfuðborgarsvæðið. Virkjunin er staðsett á háhitasvæði þar sem vatnið er fullt af uppleystum steinefnum. Ekki er hægt að nota þetta vatn beint þar sem steinefnin falla úr vatninu og stífla lagnir. Í fyrri færslu okkar er hægt að kynna sér há- og lághitasvæði betur. 


Borholurnar okkar ná um 2000-3000 metra niður í jörðina, á þessari dýpt er jarðhitavökvi sem er á bilinu 250-350°C. Jarðhitavatnið er í vökvaformi vegna þrýstings undir yfirborði jarðar. Þrýstingsmunur veldur því að þegar við borum ofan í bergið skýst jarðhitavökvinn upp á yfirborðið. 



Þegar jarðhitavökvinn er kominn upp á yfirborð skiptist hann í þrjá hluta: jarðhitavatn sem hefur kólnað niður fyrir suðupunkt, gufu og jarðhitagös.  


Við borholurnar eru gufan og vatnið skilin í sundur með þyngdarkraftinum þar sem gufan er eðlisléttari. Gufan og gösin eru send með einni pípu og vatnið með annari í átt að virkjuninni. Gufan er svo notuð í rafmagnsframleiðslu og jarðhitavatnið notað til að hita upp ferskvatn.  



Þar sem jarðhitavatnið er fullt af steinefnum svo sem kísli er ekki hægt að nota það beint í lagnakerfi borgarinnar. Kísillinn fellur úr vatninu og veldur stíflum. Jarðhitavatnið er því sent í varmaskipti, þar sem það er notað til að hita upp ferskvatn, sem er hitað upp í 86°C. Upphitaða ferskvatnið er svo sent til Reykjavíkur og jarðhitavatninu er dælt aftur ofan í bergið.  



Það er mikilvægt að vatnið haldist heitt á leið sinni til Reykjavíkur. Vatnið tapar aðeins um 2°C af varma á leiðinni svo það er um 84°C þegar það nær til borgarinnar. Pípan sem flytur vatnið er gerð úr ál plötum að utan og ryðfríu stáli að innan. Pípan er einangruð með steinull sem liggur á milli álsins og stálsins.  



Þegar vatnið er komið til Reykjavíkur er því dreift í gegnum hitaveitukerfið. Vatnið er notað á heimilum, í fyrirtækjum, sundlaugum og fleira. Afgangs varmi í vatninu er sumstaðar nýttur í snjóbræðslu áður en vatnið endar svo loks úti í sjó.