Jarðhitasýningin verður lokuð á páskadag og annan í páskum (5. og 6. apríl).

ÍS

EN

ÍS

EN

ÍS

EN

Jardhitmenning

Sýningin Jarðhitamenning fjallar um samspil okkar Íslendinga við jarðhita og hvernig auðlindin hefur verið nýtt hérlendis gegnum aldirnar. Jarðhiti gegnir mikilvægu hlutverki í menningarsögu okkar en við eigum til að horfa fram hjá honum og líta á hann sem sjálfsagðan hlut.

Á Jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun, stærstu jarðvarmavirkjun Íslands, vekjum við athygli á á þeim fjölmörgu leiðum sem jarðhiti er nýttur í samfélaginu. Næst þegar þú ferð í sund, borðar íslenska tómata eða setur í þvottavél vonumst við til þess að þú hugsir um það hvernig jarðhitinn gerir líf mögulegt hér á landi.

blob_y5skqu.webp
blob_y5skqu.webp

Þvottur

Að þvo þvott var einu sinni erfitt, tímafrekt og jafnvel hættulegt verk. Þvotturinn var þveginn í jarðhitalaugum þar sem veðrið, sjóðandi vatn og fjarlægð frá heimilinu gat valdið miklum erfiðleikum og skapað beinlínis lífshættulegar aðstæður.

blob_txayhd.webp
blob_lxvmhr.webp
blob_lxvmhr.webp

Sundlaugamenning

Íslensk sundlaugamenning er menningarfræðilegt fyrirbæri út af fyrir sig. Í lok árs 2025 fékk sundlaugamenningin opinbera skráningar á UNESCO lista yfir óáþreifanlega menningararfleið.

Gróðurhús

Saga gróðurhúsa á Íslandi er tiltölulega stutt en engu að síður merkileg. Fyrsta gróðurhúsið sem hitað var með jarðhita var tekið í notkun árið 1924. Í dag má finna mörg gróðurhús, sér í lagi á Suðurlandi, þar sem ræktað er grænmeti, blóm og ber á stórum skala.

blob_rg1j3s.webp
blob_dfz3pf.webp

Nýting jarðhita á Íslandi

Jarðhitasvæði voru mikilvæg á landnámsöld og bera mörg staðarheiti um land allt þess vitni hvernig jarðhitinn setti svip sinn á landslagið við landnám. Reykjavík er gott dæmi um slíkt heiti.

Um sýninguna

Sýningin Jarðhitamenning hefur það að markmiði að sýna okkur hvernig jarðhiti og nýting hans fléttast inn í menningu okkar. Stóran hluta lífsgæða á Íslandi má svo sannarlega rekja til náttúruauðlinda landsins og hvernig okkur hefur tekist að nýta þær.

blob_vfvtfp.webp