Komdu í leiðsögn með hópinn þinn
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðsagnir sem hægt er að aðlaga að þínum hópi, allt frá skólahópum til fagfólks og sérfræðinga. Hver heimsókn er leidd af reyndum vísindamiðlurum okkar og sniðin að áhugasviði hópsins.
Almenn hópleiðsögn Varmi
Leiðsögn á Jarðhitasýningunni hentar vel fyrir hópa, vinnustaði og félagasamtök sem vilja fræðast um hvernig við nýtum jarðhitann til orkuvinnslu.
20–25 mínútna leiðsögn
Kynning á jarðfræði, jarðhita, orkuframleiðslu og Carbfix-aðferðinni
Eftir leiðsögnina gefs tími fyrir spurningar og frekari skoðun á sýningunni
Skóla heimsóknir Orka
Fræðandi og grípandi upplifun um endurnýjanlega orku, jarðfræði og sjálfbærni, aðlagað að þínum hóp.
Fræðandi leiðsögn um endurnýjanlega orku, jarðfræði og sjálfbærni
Leiðsögn leidd af vísindamiðlara
Áherslur aðlagaðar að námsefni nemenda
Carbfix leiðsögn
Carbfix leiðsögnin okkar býður upp á ítarlegri upplifun þar sem leiðsögnin hefst á leiðsögn um Jarðhitasýninguna og endar á því að gestir fara út að niðurdælingarsvæði Carbfix.
1–1.5 klukkustunda leiðsögn
Dýpri umræða um kolefnisföngun og kolefnisförgun með Carbfix
Útsýni yfir Jarðhitagarð ON
Aldursmörk: 16+
Carbfix leiðsögn skólahópar
Lengri leiðsögn fyrir eldri nemendur þar sem fjallað er um orkuvinnslu, nýsköpun og lausnir í loftslagsmálum.
1–1,5 klukkustundir
Heimsóknirnar eru sérsniðnar að þörfum hvers hóps og endurspegla námsefni eða markmið nemenda.
Vettvangsferð að niðurdælingarsvæði Carbfix
Aldursmörk: 16+
Formleg kynning Kraftur
Formleg kynning fyrir fag- og fræðihópa með áherslu á orkuvinnslu, orkudreifingu og nýsköpun á borð við Carbfix.
30–40 mínútna kynning
Yfirlit yfir starfsemi Orku náttúrnnar, Orkuveituna, Carbfix og Jarðhitagarð ON
Umræður og spurningar í fundarherbergi
Möguleiki er að panta veitingar
Bókaðu heimsókn
Hvort sem þú kemur til að skoða, njóta eða fræðast, er Hengillinn svæði sem býr yfir mikillri orku og sögu.





